Gullkorn


Febrúar 2008

Sú stutta er með sleikjó og ég verð vör við að hún er að bryðja hann og segi:
Ekki bryðja bara sjúga þú getur annars brotið tönn.
Hún hugsar smá stund og segir svo:
Get ég þá valið mér góm, ég vil ekki bleikan ég þoli ekki bleikt !!!!!!!!
já það þarf ekki að fara frekari orðum um það en hún þekkir sem sagt fólk sem þarf að nota tanngóm!!



'I sláturtíðinni síðustu (haustið 2007) vorum við stödd í sláturhúsi einu á landsbyggðinni.
Tindra er að spóka sig um þegar hún kemur auga á eitthvað á einu borðinu.
Hún gengur að borðinu og ég fylgist álengdar með, snýr sér við og segir :
Mamma eru þetta kindahausar??? Já elskan mín segi ég. Lítur hún aftur á borðið
snýr sér svo aftur við og segir : Þeir segja nú ekki MEEEE þessir !!!!!!
Hún er skörp eins og pabbi sinn þessi elska



Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 6
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 19882
Samtals gestir: 8127
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:36:00